This is a subtitle for your new post

Síðasta vor unnu nemendur verkefnið Betri heimabyggð – skapandi nemendur með skoðanir á nærumhverfi sínu.
Þar skoðuðu þau hvað væri gott við Flateyri, hvað mætti betur fara og hvernig þau sæju fyrir sér enn betri heimabyggð.
Í lok verkefnisins héldu nemendur vel heppnað skólaþing þar sem þau kynntu hugmyndir sínar fyrir foreldrum og fulltrúum sveitarfélagsins. Þar komu fram margar skemmtilegar og metnaðarfullar hugmyndir um hvernig mætti gera Flateyri að enn betri stað til að búa á.
🏀 Og nú hefur ein af hugmyndunum orðið að veruleika!
Nýjar körfuboltakörfur eru komnar upp fyrir utan skólann!
Körfuboltakörfurnar eru hæðarstillanlegar og nýtast þær því vel bæði fyrir yngri og eldri nemendur í leik og íþróttum.
Það er virkilega gaman fyrir nemendur að sjá að hugmyndir þeirra geta orðið að veruleika og að þau geti haft áhrif á nærumhverfi sitt.











